Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. apríl 2018 Innviðaráðuneytið

Ráðgert að hefja vinnu við ný lög um leigubifreiðar með hliðsjón af tillögum starfshóps

Starfshópur sem skipaður var á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í október á síðasta ári til að endurskoða í heild regluverk um leigubifreiðaakstur á Íslandi hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Starfshópurinn telur m.a. rétt að afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá lögbundinni stöðvarskyldu. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshópsins tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi Alþingis 2019.

Tilefni endurskoðunarinnar var annars vegar frumkvæðisathugun Eftirlitsstofnunar EFTA á íslenskum leigubifreiðamarkaði og mögulegum hindrunum á aðgengi að honum. Hins vegar rökstutt álit ESA gagnvart Noregi þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við aðgangshindranir að norskum leigubifreiðamarkaði. Norsk löggjöf um leigubifreiðar er um margt lík þeirri íslensku.

Starfshópnum var falið að leggja fram tillögur til ráðuneytisins um hvort og þá hvaða breytingar væri nauðsynlegt að gera á íslensku regluverki um leigubifreiðaakstur með hliðsjón af áliti ESA gagnvart Noregi og frumkvæðisathugun ESA á Íslandi. Meginmarkmið starfshópsins var að stuðla að góðu aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu á Íslandi. Einnig að tryggja að regluverkið væri í fyllsta samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins að EES-rétti og að engar aðgangshindranir fælust í regluverkinu nema þær sem væru réttlætanlegar vegna almannahagsmuna.

Starfshópurinn skilaði ráðherra áfangaskýrslu þann 6. febrúar sl. og lokaskýrslu með niðurstöðum starfshópsins var skilað 11. apríl. Sem fyrr segir kemur fram í lokaskýrslu hópsins að starfshópurinn telur rétt að afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá lögbundinni stöðvarskyldu. Þá leggur starfshópurinn til að starfsemi leigubifreiða verði háð skilyrðum sem eiga að tryggja öryggi og gæði þjónustunnar. Tvenns konar leyfi verði til staðar, þ.e. atvinnuleyfi, sem er leyfi til að aka leigubifreið, og rekstrarleyfi, sem er leyfi til að reka eina leigubifreið.

Niðurstöður starfshópsins kalla á talsverðar lagabreytingar. Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur tekið ákvörðun um að í hefja skuli undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar til framlagningar á haustþingi á Alþingis 2019. Haft verður víðtækt samráð við hagsmunaaðila.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum