Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. apríl 2018 Innviðaráðuneytið

Ný reglugerð um hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot tekur gildi 1. maí

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skrifað undir nýja reglugerð um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot. Tekur hún gildi 1. maí næstkomandi. Sektir við umferðarlagabrotum hafa ekki hækkað í rúman áratug og er talin ástæða til að sektarupphæðir fylgi þróun verðlags. Nauðsynlegt er að fjárhæð sekta endurspegli alvarleika umferðarlagabrota og þá hættu sem þau skapa. Sektir við umferðarlagabrotum eru til þess fallnar að veita ökumönnum aukið aðhald og stuðla þannig að auknu umferðaröryggi.

Hækkun sekta verður í flestum tilvikum í samræmi við þróun verðlags, þó þannig að lægsta sektarfjárhæð frá 1. maí verður kr. 20.000 en var áður 5.000 kr. Eina undantekningin er að sekt fyrir að hafa ekki ökuskírteini meðferðis verður 10.000 kr. Sekt fyrir að nota farsíma við stýrið án handfrjáls búnaðar verður 40.000 kr. í stað 5.000 kr. Ástæða þeirrar hækkunar er meðal annars aukin tíðni slíkra brota og sú hætta sem er samfara notkun farsíma við akstur.

Drög að reglugerðinni voru birt á vef ráðuneytisins til umsagnar síðastliðið sumar. Alls bárust átta umsagnir, meðal annars frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Samgöngustofu, Vátryggingarfélagi Íslands, Samgöngufélaginu, Samtökum atvinnulífsins og tveimur sýslumannsembættum. Í heildina voru umsagnir um reglugerðardrögin jákvæðar að því varðar hækkun sekta. Í athugasemdum m.a. frá Samgöngustofu og Sýslumanninum á Norðurlandi vestra voru gerðar tillögur að breyttu orðalagi einstakra ákvæða. Tillit var tekið til þeirra athugasemda að verulegu leyti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum