Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. apríl 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Sjálfstætt lyfjaeftirlit á Íslandi

Starfsemi lyfjaeftirlits á Íslandi var færð í sérstaka sjálfseignarstofnun þegar Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ skrifuðu undir skipulagsskrá Lyfjaeftirlits Íslands á dögunum.

„Þetta er afar mikilvægt skref, með því að auka sjálfstæði lyfjaeftirlits á Íslandi stöndum við vörð um heiðarleika í íþróttum,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Lyfjaeftirlit Íslands mun skipuleggja og framkvæma lyfjaeftirlit á Íslandi, og birta og kynna bannlista um efni þau sem óheimilt er að nota í íþróttum. Lyfjaeftirlit Íslands mun einnig standa að fræðslu og forvörnum gegn lyfjamisnotkun og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi í tengslum við baráttuna gegn lyfjamisnotkun í íþróttum. Stofnuninni er ætlað að hvetja til rannsókna sem tengjast starfi þess og markmiðum, vekja athygli á málaflokknum og taka þátt í umræðum um hann.

Málefni lyfjaeftirlits hafa verið á ábyrgð menntamálaráðuneytis frá 1989 þegar undirritaður var samningur Evrópuráðsins um slíkt eftirlit. Frá 2005 hafa stjórnvöld og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands borið sameiginlega ábyrgð á verkefninu á grundvelli samnings UNESCO um lyfjaeftirlit. Ákvæði um lyfjaeftirlit var sett í íslensk íþróttalög árið 2012 en ráðgjafanefnd lyfjaeftirlits Evrópuráðsins mælti þá með því að sjálfstæð stofnun annaðist lyfjaeftirlit.

Þetta mikilvæga skref gerir lyfjaeftirlit á Íslandi sjálfstætt, í samræmi við ályktanir Alþjóðaólympíunefndarinnar og Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA). Væntanleg stjórn Lyfjaeftirlits Íslands mun skipuleggja starfsemina á næstu misserum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum