Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. apríl 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Efnahagsleg áhrif friðlýstra svæða greind

Gönguhópur í Þórsmörk - myndHugi Ólafsson
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tilkynnti í dag um samstarfsverkefni milli ráðuneytisins og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um skipulagt mat á efnahagslegum áhrifum friðlýstra svæða.

Unnar verða rannsóknir á völdum friðlýstum svæðum í sumar, sem ætlað er að draga fram hver efnahagsleg áhrif þeirra eru, ekki síst svæðisbundin og fyrir nærliggjandi byggðir. Friðlýst svæði á Íslandi eru mörg afar fjölsótt og skipta miklu í beinu efnahagslegu samhengi, ekki síst í tengslum ferðaþjónustu.

Byggir þessi vinna meðal annars á sambærilegri rannsókn sem hefur verið unnin á Þjóðgarðinum Snæfellsjökli á vegum Háskóla Íslands. Jafnframt byggir þessi vinna á viðurkenndri aðferðafræði sem aðrar þjóðir hafa beitt við svona greiningar, ekki síst í Finnlandi.

Með þessari vinnu er ætlunin að auka skilning á áhrifum friðlýstra svæða, gildi þeirra og hlutverki í hagrænu samhengi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum