Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. maí 2018 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Íslenskur talgreinir í loftið

Jón Guðnason dósent við tækni- og verkfræðideild HR og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. - mynd
Vefgátt fyrir nýjan íslenskan talgreini var opnuð á máltæknikynningu í Háskólanum í Reykjavík á dögunum. Á síðunni getur fólk kynnt sér talgreiningu og upplifað hvernig hún snýr talmáli í ritmál. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, var fyrsti notandi vefgáttarinnar og hélt ávarp á fundinum en að honum stóðu Háskólinn í Reykjavík, Almannarómur – félag um máltækni og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Talgreinirinn er opinn almenningi á vefsíðunni tal.ru.is.

„Þetta skref hér í dag er mikilvægur liður í máltækniáætluninni sem hefur það að markmiði að tryggja að hægt verði að nota íslensku í samskiptum við tæki og í allri upplýsingavinnslu.
Það er virkilega ánægjulegt að sjá hvað allir sem koma að þessu eru stórhuga en það er einmitt það sem við þurfum á að halda núna,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. „Hlutverk okkar er að hlúa að íslenskunni og nýta til þess kraftinn og hugvitið sem vísindamenn okkar hafa. Gott samstarf milli stjórnvalda, grunnskóla, háskóla og atvinnulífs er forsenda þess að við náum árangri og þessi fundur hér í dag fyllir mig bjartsýni.“

Jón Guðnason, dósent við tækni- og verkfræðideild HR og forstöðumaður Gervigreindarseturs HR, útskýrið tilurð tækninnar og sögu verkefnisins og helstu samstarfsaðila. Inga Rún Helgadóttir, sérfræðingur við Mál- og raddtæknistofu HR, fjallaði um talgreiningu á Alþingi og Steinþór Steingrímsson, verkefnastjóri í máltækni við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum lýsti notkunarmöguleikum og tilurð nýrrar risamálheildar, sem er mjög mikilvæg grunnur fyrir alla máltækni, t.d. við gerð talgreina.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum