Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. maí 2018 Dómsmálaráðuneytið

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Smáralind

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar verður í Smáralind frá og með föstudeginum 11. maí skv. tilkynningu frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla við embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna kosninga til sveitarstjórna sem fram fara 26. maí 2018 fer eingöngu fram í verslunarmiðstöðinni Smáralind í Kópavogi á 2. hæð vesturenda frá og með föstudeginum 11. maí 2018. Þar verður opið alla daga milli kl. 10:00 og 22:00.

Lokað verður uppstigningardag 10. maí 2018.

Lokað verður hvítasunnudag 20. maí 2018.

Á kjördag laugardaginn 26. maí verður opið milli kl. 10:00 og 17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu getur eingöngu sent atkvæðisbréf kjósanda sem ekki er með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu með pósti í sveitarstjórnarkosningum. Sýslumaður hvetur þá kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins að koma í fyrra lagi að kjósa ef þeir ætla að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. fyrir hvítasunnu. Að öðrum kosti er hætta á að atkvæðið berist yfirkjörstjórn í viðkomandi sveitarfélagi of seint. Sýslumaður hefur ekki tök á að koma atkvæðum til þeirra 68 yfirkjörstjórna sem eru utan höfuðborgarsvæðisins fyrir lok kjördags ef kjósandi kemur of nálægt kjördegi að kjósa. Ætla má að það geti tekið allt að fjórum dögum að koma atkvæðisbréfi út á land með pósti og póstburður fer almennt ekki fram á laugardegi. Í þeim tilvikum sem kjósandi sem býr utan höfuðborgarsvæðisins getur sjálfur komið atkvæði sínu til yfirkjörstjórnar fyrir lok kjördags er ekkert því til fyrirstöðu að koma er nær dregur kjördegi. Vakin er athygli á 2. mgr. 65. gr. laga um kosningar til Alþingis sem á einnig við um kosningar til sveitarstjórna. Þar kemur fram að kjósandi sem ekki er á kjörskrá í umdæmi viðkomandi sýslumanns, hér sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, skuli sjálfur annast og kosta sendingu atkvæðisbréfs síns. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess að koma bréfinu í póst.

Kjósendur sem eru með lögheimili í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kjósarhreppi, geta komið hvenær sem er að kjósa utan kjörfundar fram að kjördegi. Atkvæði þeirra fer í kjörkassa viðkomandi sveitarfélags.

Símanúmer sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem fer fram í Smáralind eru 860-3380 og 860-3381.

Neyðarsími kjörstjóra er 860-3382.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum