Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. maí 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Yfirlýsing menningarmálaráðherra Norðurlanda í kjölfar #églíka-byltingarinnar

Menningarmálaráðherrar Norðurlanda skrifuðu í dag undir sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir vegna #églíka-byltingarinnar. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, situr fund þeirra í Malmö í Svíþjóð og greindi meðal annars frá aðgerðum íslenskra stjórnvalda í kjölfar frásagna kvenna af kynferðislegri áreitni og ofbeldi.

Norræna upplýsingaveitan um kynjafræði hefur kortlagt lagaumhverfi kynferðislegrar áreitni og vernd gegn henni í atvinnulífinu. Í grunninn er viðfangsefnið einfalt; kynferðisleg áreitni er ólögleg og hvarvetna á Norðurlöndum hvílir sú skylda á vinnuveitendum að koma í veg fyrir og bregðast við kynferðislegri áreitni. Löggjöf Norðurlanda er skýr en það er ljóst að eftirfylgni með lögunum hefur víða verið ábótavant.

„Norrænu menningarmálaráðherrarnir eru ákveðnir í stuðla að breytingum í þessum efnum. Jafnrétti er ein af forsendunum þeirrar velgengni sem Norðurlöndin njóta og við í Norrænu ráðherranefndinni um menningarmál tökum mið af jafnréttissjónarmiðum í öllu okkar starfi. Ég er þeirrar skoðunar að við getum dregið lærdóm hvert af öðru og yfirlýsingin er liður í að auka samstarf á þessu sviði,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Á fundinum samþykktu ráðherrarnir að fela skrifstofu ráðherranefndarinnar að undirbúa áframhaldandi aðgerðir sem feli meðal annars í sér vernd gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi og aukið öryggi á starfsvettvangi menningar, íþrótta og fjölmiðla.

Hér má lesa yfirlýsinguna.  

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
10. Aukinn jöfnuður
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum