Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. maí 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðherra kjörinn varaformaður eigendanefndar EBRD

Eigendanefnd bankans á ársfundi hans í Jórdaníu.  Mynd/Flickr-síða EBRD  - mynd

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var kjörinn varaformaður eigendanefndar Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) á ársfundi bankans sem haldinn var við Dauðahafið í Jórdaníu dagana 9-10.maí.

Á fundinum voru umræður um stöðu og framtíðarstefnu bankans. Þetta var 27. ársfundur bankans, sem á sínum tíma var ekki síst stofnaður til að styðja við efnahagsþróun og fjárfestingar í ríkjum Austur-Evrópu.

Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu er alþjóðleg fjármálastofnun sem fjármagnar verkefni á vegum einkafyrirtækja og opinberra aðila. Starfsemi bankans nær til yfir 30 landa - frá Austur-Evrópu til Mið-Asíu og Suður- og Austur-Miðjarðarhafs. Sérstök áhersla er lögð á þróun og fjármögnun verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku og umhverfisvænna orkugjafa.

Nýverið var haldinn kynningarfundur hér á landi um bankann, þar sem starfsemi hans og fjárfestingartækifæri voru kynnt áhugasömum. Á vegum bankans eru tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að starfa sem ráðgjafar í verkefnum, m.a á sviði orkumála og þá er hægt að vinna með beinum hætti með bankanum að fjárfestingum á starfssvæðum hans.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum