Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. maí 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndVelferðarráðuneytið

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag ákvörðun sína um að auka til muna fjármuni til að efla og þróa heilsugæsluþjónustu um allt land: „Markmiðið er ekki síst að jafna aðgengi landsmanna að þessari mikilvægu grunnþjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjónustunnar og stuðla að nýjungum“ segir heilbrigðisráðherra.

  • Þróunarmiðstöðin mun leiða faglega þróun allar heilsugæsluþjónustu í landinu.
  • Heilbrigðisráðherra skipar fagráð sem tryggir sjálfstæði miðstöðvarinnar og tengsl við veitendur heilsugæsluþjónustu um allt land.
  • Þróunarmiðstöðin starfar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
  • Árlegur rekstrarkostnaður er áætlaður tæpar 230 milljónir króna.
  • Um 13 stöðugildi verða við miðstöðina, með áherslu á breiða fagþekkingu

Fyrirrennari Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar er Þróunarstofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem starfrækt hefur verið innan stofnunarinnar frá árinu 2009. Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar á landsvísu mun byggja á grunni hennar, en fær aukið sjálfstæði, víðtækara hlutverk og mun sem fyrr segir leiða faglega þróun allrar heilsugæsluþjónustu í landinu, hvort sem hún er veitt af hinu opinbera eða einkarekin.

Auk þess að stuðla að nýjungum og þróun þjónustuúrræða í samræmi við helstu áskoranir á sviði lýðheilsu mun Þróunarmiðstöðin annast innleiðingu gæðavísa, leiða samstarf á sviði rannsókna og stuðla að því að sérhæfð þekking fagfólks heilsugæslunnar um allt land nýtist sem best. Samræming og samhæfing þjónustu á landsvísu er eitt af meginmarkmiðunum með stofnun miðstöðvarinnar, þannig að betur megi tryggja jafnræði landsmanna og aðgang þeirra að sambærilegri heilsugæsluþjónustu, hvar sem fólk býr.

Heilbrigðisráðherra skipar fagráð Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar sem í situr fulltrúi frá hverri heilbrigðisstofnun sem rekur heilsugæslustöð, einn fulltrúi sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðva, einn fulltrúi frá heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands og einn frá heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins ræður forstöðumann Þróunarmiðstöðvar heilsugæsl­unnar og veitir hann fagráðinu forystu.

Eflir faglegan styrk í dreifðum byggðum

Horft er til þess að með Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar skapist stóraukin tækifæri fyrir fagfólk heilsugæslunnar um allt land, til virkrar þátttöku í gæða- og þróunarverkefnum sem torvelt hefur verið að sinna á minni stöðum. Þetta muni styrkja faglegt starf innan heilsugæslu á landsbyggðinni og einnig skapa aukin tækifæri til að miðla þekkingu og reynslu milli stofnana og rekstrareininga.

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð sem kveður á um starfsemi Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar og verður hún birt í Stjórnartíðindum á næstu dögum.

 

  • Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót - mynd úr myndasafni númer 1
  • Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót - mynd úr myndasafni númer 2
  • Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót - mynd úr myndasafni númer 3
  • Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót - mynd úr myndasafni númer 4
  • Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót - mynd úr myndasafni númer 5
  • Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót - mynd úr myndasafni númer 6
  • Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót - mynd úr myndasafni númer 7

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum