Embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík laust til umsóknar
Hæfnikröfur
Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu, hæfileika til nýsköpunar og að stýra breytingum. Þekking og reynsla af stjórnsýslu, fjármálum og rekstri er einnig mikilvæg.Menntunarkröfur
Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun og kennslureynslu á framhaldsskólastigi.Starfssvið
Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar. Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2018.Um laun skólameistara fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Umsóknir
Umsóknir með greinargerð umsækjenda um framtíðarsýn fyrir Framhaldsskólann á Húsavík (út frá faglegum og rekstrarlegum áherslum í skólastarfi) með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík eða á netfangið [email protected], mánudaginn 11. júní 2018.Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar ekki teknar til greina. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2018.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 24. maí 2018.