Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. júní 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Rafrænt lyfjaumsjónarkerfi hlaut nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ásamt verðlauna- og viðurkenningarhöfum. - mynd

Verkefnið ALFA – rafrænt lyfjaumsjónarkerfi hlaut nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2018 sem veitt voru á ráðstefnu föstudaginn 8. júní. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, afhenti verðlaunin. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var „Betri opinber þjónusta með öflugu samstarfi og nýtingu stafrænna lausna“.

Alls voru 33 verkefni tilnefnd til nýsköpunarverðlaunanna.

Verkefnið sem bar sigur úr býtum er samvinnuverkefni Öldrunarheimila Akureyrar, Akureyrarkaupstaðar, Lyfjavers ehf. og Þulu – Norræns hugvits. ALFA er stafræn lausn á lyfjaumsjónarkerfi sem þróuð var í þeim tilgangi að einfalda lyfjaskráningu, utanumhald á lyfjalager og samskipti á milli öldrunarheimila og birgja. Verkefnið hefur leitt til mikillar hagræðingar og umbóta í rekstri öldrunarheimila.

Fjögur verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu á ráðstefnunni: Vatnajökulsþjóðgarður fyrir „Sjálfvirk innheimta og aðgangsstýring“; Ísafjarðarbær fyrir „Blábankinn, samfélagsmiðstöð á Þingeyri“; Kópavogsbær fyrir „Social Progress Portrait; Mælikvarði á félagslegar framfarir í Kópavogi og MÆLKÓ“ og Skútustaðahreppur fyrir „Umbótaáætlun í fráveitumálum í Mývatnssveit“.

Ráðstefnan var mjög vel sótt en skráðir voru rúmlega 190 þátttakendur frá u.þ.b. 100 stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Ráðstefnan er samstarfsverkefni fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum