Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. júlí 2018 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra skipar nefnd um þróun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði

Forsætisráðherra skipar nefnd um þróun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði - myndHaraldur Jónasson / Hari
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd um þróun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Verkefni nefndarinnar er að koma með tillögu að mælikvörðum sem eru lýsandi fyrir hagsæld og lífsgæði á Íslandi. Mælikvarðarnir þurfa að vera fjölþættir og ná yfir efnahagslega, umhverfislega og félagslega þætti. Mælikvarðarnir þurfa að byggja á viðurkenndum aðferðum og vera samanburðarhæfir við önnur lönd. Mikilvægt er að mælikvarðarnir taki mið af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og mælikvörðum í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar eftir því sem við á.

Í nefndinni sitja Lárus Blöndal, ráðgjafi á sviði tölfræðiupplýsinga á skrifstofu stefnumála, fulltrúi forsætisráðuneytisins og formaður nefndarinnar, Fjóla Agnarsdóttir, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins, Herdís H. Schopka, fulltrúi umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Kolbeinn Hólmar Stefánsson, fulltrúi Hagstofu Íslands, Sigurður Snævarr og Kristín Vala Ragnarsdóttir, fulltrúar þeirra flokka sem mynda minnihluta á Alþingi og Andrés Ingi Jónsson og Bryndís Haraldsdóttir, fulltrúar þeirra flokka sem mynda meirihluta á Alþingi.

Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum eigi síðar en í lok júní 2019.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum