Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. júlí 2018 Forsætisráðuneytið

Sumarfundur ríkisstjórnarinnar haldinn að Langaholti í Snæfellsbæ mánudaginn 16. júlí.

Ríkisstjórnarfundur verður haldinn að Langaholti í Snæfellsbæ í dag, mánudaginn 16. júlí.

Að loknum ríkisstjórnarfundi mun ríkisstjórnin funda með fulltrúum sveitarstjórna á Vesturlandi. Á þeim fundi verður m.a. farið yfir áherslur ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmálanum og mál sem rædd voru á ríkisstjórnarfundinum og tengjast byggðamálum. Þá munu fulltrúar sveitarstjórna á svæðinu fara yfir stöðu mála og kynna sín helstu áherslumál.

Í kjölfarið verður haldinn blaðamannafundur sem áætlað er að hefjist kl. 14:30.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum