Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. júlí 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf sérfræðings á skrifstofu mennta- og vísindamál

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu mennta- og vísindamála. Um er að ræða fullt starf.

Skrifstofan fjallar um málefni allra skólastiga og vísinda. Hún aðstoðar ráðherra við yfirstjórn stofnana og sjóða sem annast framkvæmd stjórnarmálefna er undir hann heyra og hefur eftirlit með starfsemi og fjárreiðum þeirra. Meginverkefni sérfræðingsins verða á sviði leik- og grunnskóla en einnig gæti orðið um verkefni að ræða þvert á skólastig.

Sérfræðingurinn mun taka þátt í stefnumótun, áætlanagerð og eftirliti í samræmi við lög um opinber fjármál, lög um leikskóla og lög um grunnskóla og önnur lög sem við eiga.

Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfinu og reynslu í stjórnsýslu, stefnumótun og verkefnastjórnun. Reynsla og þekking á leik- og grunnskólastigi er nauðsynleg, m.a. er varðar námskrárgerð, námsmat og málefni nemenda af erlendum uppruna. Frumkvæði, lausnamiðuð vinnubrögð og samstarfshæfni eru nauðsynlegir kostir. Gerð er krafa um góða ritfærni og góða kunnáttu í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið eigi síðar en 1. október nk. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Hellen Gunnarsdóttir skrifstofustjóri.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins. Umsóknir gilda í sex mánuði.

Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2018.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 27. júlí 2018.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum