Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. júlí 2018 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir Kvennafrí 2018 um fimm milljónir kr.

Þann 24. október 1975 lögðu þúsundir kvenna um land allt niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna undir yfirskriftinni kvennafrí og síðan hafa konur fjórum sinnum til viðbótar gengið út af vinnustað sínum til að mótmæla misrétti og misjöfnum kjörum kynjanna á íslenskum vinnumarkaði.

Fulltrúar 34 samtaka kvenna og fimm heildarsamtaka launafólks munu sameiginlega efna til viðburðarins Kvennafrí 2018 þann 24. október nk., undir formerkjum #metoo / #églíka til að styðja við þær konur sem hafa stigið fram og sagt sögur sínar. Með því vilja konur láta heyra í sér á nýjan leik og kalla eftir aðgerðum stjórnvalda, atvinnurekenda, stéttarfélaga, félagasamtaka og stofnana og breytingum innan samfélagsins í heild.

Undirbúningsnefnd sem skipuð hefur verið um viðburðinn leitaði til ríkisstjórnarinnar með beiðni um styrk vegna undirbúnings og framkvæmd samstöðufunda og samþykkti ríkisstjórnin á fundi sínum í morgun að veita fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé sínu til verkefnisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum