Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. ágúst 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fulltrúar kínverska kommúnistaflokksins funduðu með fjármála- og efnahagsráðherra

Bjarni Benediktsson og Wang Yajun, fulltrúi CPC.  - mynd
Fulltrúar kínverska kommúnistaflokksins, CPC, heimsóttu Ísland á dögunum og óskuðu eftir fundi með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Á fundinum kynntu fulltrúar CPC hugmyndir flokksins að auknu samstarfi við önnur ríki.

Fjármála- og efnahagsráðherra fór á fundinum yfir stöðu efnahagsmála á Íslandi, þróun frá efnahagshruninu 2008 og samanburð við önnur OECD ríki.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum