Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. október 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Sýklalyfjanotkun og ónæmar bakteríur

Árleg skýrsla Embættis landlæknis um sýklalyfjanotkun og algengi sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi hjá mönnum og dýrum er komin út. Skýrslan er samstarfsverkefni sóttvarnalæknis, sýklafræðideildar Landspítala og Lyfjastofnunar.

Í skýrslunni kemur fram að sýklalyfjanotkun hjá mönnun jókst um rúm 3% árið 2017 frá fyrra ári. Í tilkynningu á vef embættisins kemur meðal annars fram að á þessu ári hafi verið ráðist í vinnu með læknum sem miðar að því að efla vitund þeirra og bæta ávísanavenjur þeirra vegna sýklalyfja til að draga úr notkun þeirra. Útbreiðsla sýklalyfjaónæmra baktería er álitin ein helsta heilbrigðisógn samtímans segir í tilkynningunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum