Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. október 2018 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundaði með framkvæmdastjóra Alþjóðaráðs Rauða krossins

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Yves Daccord, framkvæmdastjóri ICRC (Alþjóðaráðs Rauða krossins) - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Yves Daccord, framkvæmdastjóra ICRC (Alþjóðaráðs Rauða krossins) í dag.

Forsætisráðherra og framkvæmdastjóri ICRC ræddu m.a. stöðu mannúðarmála og mannréttinda á alþjóðavettvangi, baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi sem beitt er skipulega í stríði og aukinn stuðning íslenskra stjórnvalda við Alþjóða Rauða krossinn.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Rauði krossinn vinnur ómetanlegt starf í þágu mannúðar í heiminum og mikilvægt er fyrir stjórnvöld að eiga sem allra best samstarf við Rauða krossinn, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi.“

Yves Daccord er hér á landi vegna samstarfssamnings Íslands og Rauða kross Íslands 2017-2019, en þar er m.a. kveðið á um að RKÍ og utanríkisráðuneytið skuli á gildistíma samkomulagsins standa að árlegum samráðsfundi þar sem farið er yfir stöðu mannúðarmála í heiminum.

  • Atli Viðar Thorstensen, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Yves Daccord, framkvæmdastjóri ICRC, Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri RKÍ og Nicolas Roggo - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

10. Aukinn jöfnuður

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum