Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. október 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fundað um framtíðarskipan húsnæðismála Menntaskólans í Reykjavík

Starfshópur sem skipaður hefur verið til þess að greina húsnæðisþörf Menntaskólans í Reykjavík hélt sinn fyrsta fund og heimsótti skólann í dag. Hópnum er falið það verkefni að vera Framkvæmdasýslu ríkisins innan handar við þarfagreiningu.

Hópinn skipa Björn Jóhannesson formaður, Auður B. Árnadóttir, Rúnar Gunnarsson skipaður af Reykjavíkurborg, Elísabet Siemsen tilnefnd af Menntaskólanum í Reykjavík, Guðrún Ingvarsdóttir og Aðalsteinn Snævar Guðmundsson bæði tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Menntaskólinn í Reykjavík er sú menntastofnun hér á landi sem á hvað lengsta sögu, þó skólinn hafi ekki borið sama heiti alla tíð né verið á sama stað. Sögu skólans má rekja aftur til biskupsstólsins í Skálholti á elleftu öld. Skólinn flutti til Reykjavíkur árið 1786 og frá 1846 hefur hann starfað í húsnæði við Lækjargötu í Reykjavík sem á sínum tíma var stærsta hús landsins. Um þessar mundir stunda um 850 nemendur nám við skólann.

„Það hefur legið fyrir um hríð að huga þarf að framtíðarsýn húsnæðismála Menntaskólans í Reykjavík. Ýmsar hugmyndir hafa verið kynntar þar að lútandi en ekki náðst nægileg sátt um framkvæmd þeirra. Menntaskólinn í Reykjavík skipar ákveðinn sess í sögu okkar og hefur lagt mikið af mörkum til menntunar á Íslandi. Ég bind vonir við að vinna þessa starfshóps muni skila okkur áleiðis að því markmiði að tryggja betri húsnæðiskost skólans til framtíðar,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum