Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. október 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tillögur að friðlýsingum vatnasviða Jökulsár á Fjöllum og Markarfljóts

Markarfljót séð frá Stóra-Dímon - myndHugi Ólafsson

Umhverfisstofnun hefur lagt fram til kynningar tillögur að friðlýsingu tveggja svæða á grundvelli flokkunar þeirra í verndarflokk rammaáætlunar. Friðlýsingin tekur til verndar gegn orkunýtingu. Um er að ræða vatnasvið Jökulsár á Fjöllum og Markarfljóts.

Tillögurnar að friðlýsingunum eru hluti af átaki í friðlýsingum sem kveðið er á um í sáttmála ríkisstjórnarinnar. Tillögur að friðlýsingu þriggja svæða fóru í kynningu í september og svæðin eru því samtals orðin fimm.

Jökulsá á Fjöllum og Markarfljót eru í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar (rammaáætlunar) samkvæmt samþykkt Alþingis frá árinu 2013 og ber því að friðlýsa gegn orkunýtingu. Starfshópur sem umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði síðastliðinn vetur, með sérfræðingum ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar, vinnur nú að friðlýsingum þessara svæða sem og annarra.

Auk þess sem um er að ræða friðlýsingar svæða í verndarflokki rammaáætlunar, tekur átakið til friðlýsinga á eldri náttúruverndaráætlunum sem Alþingi samþykkti fyrir allmörgum árum að friðlýsa en enn er ólokið við. Auk þess er með átakinu hafinn undirbúningur að friðlýsingu svæða sem eru undir miklu álagi ferðamanna, með það að markmiði að tryggja vernd náttúru- og menningarminja og um leið að tryggja umsjón, stjórnun, landvörslu og uppbyggingu innviða.

„Friðlýsingarhjólin eru farin að snúast og unnið er að því að ljúka sem fyrst friðlýsingum svæða í verndarflokki rammaáætlunar frá 2013. Þessar friðlýsingar eru hluti af því. Almennt séð er mikilvægt að stuðla að bættum skilningi á friðlýsingum, hvað í þeim felst og hvaða tækifæri fylgja þeim,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Við höfum því ráðist í margvísleg verkefni núna sem eru hluti þessa stóra friðlýsingarátaks.“

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands rannsakar nú efnahagsleg áhrif 11 svæða sem ýmist eru friðlýst eða á náttúruminjaskrá og niðurstaðna úr þeirri rannsókn er að vænta fljótlega. Sérstakar sviðsmyndagreiningar verða auk þess unnar fyrir nokkur svæði sem ekki eru friðlýst en hafa verið til umfjöllunar vegna náttúruverndar. Markmiðið er að greina hvaða tækifæri felast í mögulegri friðlýsingu þeirra.

Frestur til athugasemda við tillögurnar sem Umhverfisstofnun hefur kynnt er til og með 23. janúar 2019.

Tillaga að friðlýsingu vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum

Tillaga að friðlýsingu vatnasviðs Markarfljóts

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum