Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. október 2018 Forsætisráðuneytið

Matvælaframleiðsla eitt af stóru viðfangsefnum stjórnmálanna á þessari öld

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti setningarávarp á Matvæladegi Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ) 2018 sem haldinn er í dag.

Í ávarpi sínu sagði forsætisráðherra m.a. að matvælaframleiðsla muni verða eitt af stóru viðfangsefnum stjórnmálanna á þessari öld:

„Matur, matvælaframleiðsla, matvælaöryggi, matarsóun, matarmenning – það eru svo margar hliðar á þessu máli. Það er sýn ríkisstjórnarinnar að við eigum að móta okkur framtíðarsýn um matvælalandið Ísland. Þar þurfa nánast öll ráðuneyti að taka þátt. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið er þungamiðja í slíku starfi, en þar þurfa líka að taka þátt heilbrigðisráðuneyti, enda er matur og matvælaöryggi stórt heilbrigðismál; umhverfis- og auðlindaráðuneyti, enda er matvælaframleiðsla einn af stóru áhrifaþáttunum þegar kemur að loftslagsbreytingum; atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, sem sömuleiðis er ráðuneyti neytendamála en hvorttveggja tengist þeim kröfum sem neytendur gera til matvæla; mennta- og menningarmálaráðuneytið enda skiptir máli að tengja matinn og uppruna hans inn í menntun barnanna okkar; samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, byggðamálaráðuneytið, enda er matvælaframleiðsla dreifð um land allt og svo utanríkisráðuneytið, bæði vegna inn- og útflutnings matvæla, en ekki síður vegna áhrifa matvælaframleiðslu á loftslag. Þarna þurfum við að vinna þvert á ráðuneyti og stofnanir og setja okkur stefnu þannig að við byggjum hér upp matvælaframleiðslu, tryggjum matvæla- og fæðuöryggi, drögum úr matarsóun, berjumst gegn loftslagsbreytingum, eflum lýðheilsu og aukum nýsköpun og þróun á sviði matvælaframleiðslu.“

Yfirskrift Matvæladags MNÍ er „Matvælastefna – hvað er það, fyrir hverja og af hverju?
  •   - mynd

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
14. Líf í vatni
15. Líf á landi
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum