Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. nóvember 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Mikilvægt og löngu tímabært og setja fram skýra stefnu í heilbrigðismálum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndVelferðarráðherra

Meiri hluti Evrópuþjóða hefur sett sér heilbrigðisstefnu og það er aðkallandi og mikilvægt að slík stefna verði sett hér á landi. „Heilbrigðisstefna á að vera leiðarljós sem sameinar krafta þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu og tryggir sjúklingum bestu þjónustu sem völ er á, þar sem öryggi, gæði og jöfnuður eru í fyrirrúmi“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við opnun heilbrigðisþingsins sem haldið er í dag.

Svandís ræddi um lykilviðfangsefni stefnunnar sem verið er að móta og gerði sérstaklega að umfjöllunarefni hve miklu skipti að ná breiðri sátt um slíka stefnu. Þess vegna eigi slík stefna að hverfast um ákveðin fagleg og siðferðileg grundvallargildi og stefna að markmiðum sem ljóst er að séu eftirsóknarverð og í þágu heilbrigðis þjóðarinnar til lengri og skemmri tíma litið. Svandís sagði mikið efni og margvísleg gögn liggja fyrir til að styðjast við í stefnumótunarvinnunni, svo sem leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, fjölmargar skýrslur OECD og ýmsar greiningarskýrslur um íslenskt heilbrigðiskerfi og þjónustu þess sem gerðar hafa verið á síðustu misserum og árum: „Við höfum við margt að styðjast. Við höfum fjölmennt lið heilbrigðisstarfsfólks með fjölbreytta menntun, reynslu og bakgrunn sem getur lagt þessari vinnu lið. Það er fyrir hendi reynsla og þekking sem mikilvægt er að draga inn í vinnuna og við skulum heldur ekki gleyma notendunum sjálfum sem geta miðlað af eigin reynslu og lýst væntingum sínum“ sagði Svandís meðal annars við upphaf heilbrigðisþingsins í morgun.

Árið 2016 höfðu rúmlega 60% Evrópuþjóða sett sér heildstæða stefnu sem tekur mið af Heilbrigðisstefnu Evrópu til ársins 2020. Sú stefna byggist á ákveðnum grunngildum sem eru sanngirni, sjálfbærni, gæði, gagnsæi, ábyrgð, jafnrétti kynja, virðing og réttur til að taka þátt í ákvarðanatöku. „Þetta eru atriði sem við hljótum sem þjóð að geta sameinast um og verið sammála um og okkur á ekki að vera skotaskuld úr því, fremur en öðrum þjóðum, að sameinast um skýra og markvissa stefnu og sýn í heilbrigðismálum landsmanna til ársins 2030. Ég vonast til að heilbrigðisþingið hér í dag verði gott innlegg í þessa mikilvægu vinnu“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við upphaf þingsins í dag.

  • Mikilvægt og löngu tímabært og setja fram skýra stefnu í heilbrigðismálum - mynd úr myndasafni númer 1
  • Mikilvægt og löngu tímabært og setja fram skýra stefnu í heilbrigðismálum - mynd úr myndasafni númer 2
  • Mikilvægt og löngu tímabært og setja fram skýra stefnu í heilbrigðismálum - mynd úr myndasafni númer 3
  • Mikilvægt og löngu tímabært og setja fram skýra stefnu í heilbrigðismálum - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum