Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. nóvember 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands  - myndVelferðarráðuneytið

Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Heilbrigðisráðherra mun setja í stöðuna til eins árs, sbr. 24. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Stefnt er að því að setja í stöðuna 1. febrúar 2019.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands sem nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Um er að ræða stofnun sem fær um 4,5 milljarða kr. af fjárlögum ríkisins og þar eru um 260 stöðugildi.

Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur.
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri.
Þekking og reynsla  af mannauðsmálum.
Þekking og reynsla á sviði heilbrigðisþjónustu.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Leiðtogahæfileikar.

Hæfni umsækjenda verður metin af nefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri, [email protected].

Umsóknir skulu berast velferðarráðuneytinu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eða á netfangið: [email protected] eigi síðar en 17. desember nk.

Öllum umsóknum verður svarað þegar heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um setningu í embættið.  

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum