Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. desember 2018 Forsætisráðuneytið

Vegna fyrirspurnar frá Öryrkjabandalagi Íslands

Vegna fyrirspurnar frá ÖBÍ vill forsætisráðuneytið koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

Forsætisráðherra vísaði í tilgreindum ummælum til aukningar á framlögum til málaflokks örorkulífeyrisþega. Framlög til þessa hóps hafa aukist í síðustu tvennum fjárlögum sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt fram um rúmlega 9 milljarða utan verðlagsbreytinga, á föstu verðlagi ársins 2019 – en það er 17% hækkun frá fjárlögum ársins 2017.

Af þessum rúmlega 9 milljörðum fara um 37% eða 3,3 milljarðar í hreinar viðbætur til að bæta kjör öryrkja. Það eru annars vegar 436 milljónir á þessu ári sem fóru í viðbótarbótahækkun (2,4% umfram 4,7% hækkun) til að hækka bætur þeirra öryrkja sem halda einir heimili í 300 þúsund krónur. Hins vegar eru það 2,9 milljarðar árið 2019 í fyrirhugaðar kerfisbreytingar til að bæta kjör örorkulífeyrisþega. Nánari skiptingu má sjá í töflunni hér að neðan.

Þess ber að geta að heildaraukning til málefnasviðs 27 Örorka og málefni fatlaðs fólks í tvennum fjárlögum er ríflega 14 milljarðar króna sem er 26% hækkun frá fjárlögum ársins 2017. Þá eru meðtaldar lögbundnar bótahækkanir, annars vegar um 4,7% á árinu 2018 og 3,6% árið 2019.

Að auki má nefna að utan ofangreindra framlaga er aukning í útgjöldum vegna vinnusamninga öryrkja, en þau framlög hafa hækkað um 331 milljón króna í tvennum fjárlögum. Þá hafa framlög til starfsendurhæfingar sömuleiðis verið aukin og eru utan ofangreindra upphæða, en þau hafa aukist um rúmar 100 milljónir króna frá 2017.

Vegna þess að vísað er til orða forsætisráðherra um að ríkisstjórnin komi til móts við tekjulægri hópa í fjárlagafrumvarpinu má benda á að fyrirhugað er að hækka persónuafslátt um eitt prósentustig umfram lögbundna hækkun, sem og að hækka barnabætur um 16% á milli ára sem gerir það að verkum að þeim sem eiga rétt á barnabótum fjölgar um 2.200 milli ára. Allt kemur þetta til móts við tekjulægri hópa.

 

27 Örorka og málefni fatlaðs fólks, m.kr.

2017

2018

2019

Fjárlög, verðlag 2017

54.463

59.393

63.960

Fjárlög, verðlag hvers árs

54.463

61.877

68.678

Breytingar

Bótahækkanir 2018 (4,7%)

2.483

Viðbótarbótahækkun 2018 (2,4% umfram 4,7% hækkun) til að hækka bætur þeirra öryrkja sem halda einir heimili í 300 þús.kr.

436

Bótahækkanir 2019 (3,6%)

2.236

Kerfislægur vöxtur - fjölgun bótaþega

2.257

1.244

Endurmat á útgjöldum fyrra árs

1.600

Fyrirhugaðar kerfisbreytingar til að bæta kjör öryrkja

2.900

Aukin framlög til jöfnunar á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða

367

377

NPA

140

70

Viðbótarheimild vegna aðgerða til að hamla nýgengi öryrkja.

75

Efling réttindagæslu fyrir fatlað fólk.

30

Frístundaþjónusta við fatlaða nemendur.

30

Annað

-4

-25

Samtals

7.414

6.802

Samtals án verðlagshækkana

 

4.931

4.566

Framangreint svar er unnið í samvinnu fjármála- og efnahagsráðuneytis, velferðarráðuneytis og forsætisráðuneytis og ber að líta á það sem sameiginlegt svar ráðuneytanna þriggja við fyrirspurnum Öryrkjabandalagsins til ráðuneytanna um málið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum