Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. desember 2018 Forsætisráðuneytið

Undirritun samnings um ráðgjöf Siðfræðistofnunar til stjórnvalda um siðfræðileg efni

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar undirrita samninginn - mynd

Siðfræðistofnun, rannsóknarstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, verður stjórnvöldum til ráðgjafar í siðfræðilegum efnum tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2021. Þetta kemur fram í samstarfssamningi sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar rituðu undir í gær.

Stofnunin mun vinna með stjórnvöldum að eftirfylgni og innleiðingu tilmæla í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu, sem var birt í september sl. Samkvæmt samningnum getur hvert ráðuneyti einnig óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar um einstök mál á sínu málefnasviði, þar með talið um fyrirhugaða lagasetningu. Þá geta Alþingi og stofnanir þess óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar. Greiðslur úr ríkissjóði fyrir verkið munu nema 10 m.kr. árlega.


  • Undirritun samnings um ráðgjöf Siðfræðistofnunar til stjórnvalda um siðfræðileg efni - mynd úr myndasafni númer 1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum