Dagskrá forsætisráðherra 10. - 16. desember 2018
Mánudagur 10. desember
Kl. 09:00 Fundur í ráðherranefnd um samræmingu mála.
Kl. 10:40 Flutti lokaorð á hátíðarfundi í tilefni af 70 ára afmæli mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna.
Kl. 11:00 Fundur í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins.
Kl. 12:00 Hádegisverðarfundur með Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra og Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra.
Kl. 13:00 Þingflokksfundur.
Kl. 15:00 Óundirbúinn fyrirspurnartími á Alþingi.
Kl. 16:00 Fundur með framkvæmdanefnd Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Þriðjudagur 11. desember
Kl. 09:30 Ríkisstjórnarfundur.
Kl. 13:00 Viðtal við Úlf Stígsson og nemendur úr Menntaskólanum við Sund.
Kl. 14:00 Þingfundur.
Miðvikudagur 12. desember
Kl. 08:00 Fundur í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins.
Kl. 09:00 Fundur með fulltrúum úr Samtökum ferðaþjónustunnar.
Kl. 10:00 Fundur með forseta Íslands.
Kl. 11:00 Fundur með fulltrúum í stjórn Jafnréttissjóðs.
Kl. 13:00 Þingflokksfundur.
Kl. 15:00 Þingfundur.
Kl. 20:00 Fundur Eldri vinstri grænna.
Fimmtudagur 13. desember
Kl. 11:00 Þingfundur.
Kl. 16:00 Undirritun samnings um ráðgjöf Siðfræðistofnunar til stjórnvalda um siðfræðileg efni í Ráðherrabústaðnum.
Föstudagur 14. desember
Kl. 08:30 Morgunverður með ráðherrum í ríkisstjórn.
Kl. 09:00 Ríkisstjórnarfundur.
Kl. 10:30 Þingfundur á Alþingi.
Sunnudagur 16. desember
Kl. 14:00 Jólatónleikar í Hörpu