Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2019
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. Gisting og fæði í einn sólarhring | kr. 26.100 |
2. Gisting í einn sólarhring | " 14.300 |
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag | " 11.800 |
4.Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag | " 5.900 |
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. febrúar 2019. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2018 dags. 30. maí 2018.
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.