Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. janúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisstefna til umfjöllunar í velferðarnefnd

Alþingi - myndHeilbrigðisráðuneytið

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti fyrir tillögu sinni til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 á Alþingi í gær. Þingsályktunartillagan er nú komin til umfjöllunar hjá velferðarnefnd þingsins.

 

Í ræðu sinni benti ráðherra á að ákvörðun um að leggja fram heilbrigðisstefnu komi fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Það væri jafnframt grundvöllur heilbrigðisþjónustunnar og heilbrigðiskerfisins að fyrir liggi hvert stjórnvöld hyggist stefna og standa að þróun heilbrigðismála. Hún benti á að þegar rætt væri um lífslíkur og heilsu þjóða almennt skiptu allir þættir samfélagsins máli og mikilvægastir væru þeir þættir sem lúta að lífsstíl fólks, auk félagslegra og efnahagslegra þátta. Í því samhengi gegni heilbrigðisþjónustan því minna hlutverki en margir myndu ætla.

Engu að síður, sagði ráðherra, er góð heilbrigðisþjónusta nánast forsenda fyrir byggð í landinu. Hún sagði heilbrigðisstefnuna sem hér er til umfjöllunar snúast um heilbrigðiskerfið í hinum þrengri skilningi þar sem fjallað væri um þær grunnstoðir sem nauðsynlegar eru til að byggja upp traust heilbrigðiskerfi. Þar sem ríkið sem kaupandi þjónustunnar getur tekið ákvörðun um nauðsynlega forgangsröðun, metið mikilvægi verkefna í samræmi við þarfir notenda hverju sinni og tryggt sem jafnast aðgengi þeirra, óháð búsetu eða efnahag.

Unnt er að hlusta á framsöguræðu heilbrigðisráðherra á vef Alþingis, ásamt ræðum þeirra fjórtán þingmanna sem tóku til máls í umræðum um málið á Alþingi í gær.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  1. Anna Kolbrún Árnadóttir:
  2. Ásgerður K. Gylfadóttir:
  3. Birgir Þórarinsson:
  4. Bryndís Haraldsdóttir:
  5. Guðmundur Ingi Kristinsson:
  6. Halldóra Mogensen (andsvar):
  7. Hanna Katrín Friðriksson:
  8. Heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (andsvar):
  9. Njáll Trausti Friðbertsson:
  10. Oddný G. Harðardóttir (andsvar):
  11. Ólafur Þór Gunnarsson:
  12. Óli Björn Kárason:
  13. Sara Elísa Þórðardóttir (andsvar):
  14. Vilhjálmur Árnason:
  15. Þorsteinn Víglundsson (andsvar):

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum