Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. febrúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkratryggingar Íslands

Forstjóri býður heilbrigðisráðherra velkominn - myndSjúkratryggingar Íslands

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni Sjúkratryggingar Íslands, kynnti sér stofnunina og starfsemi hennar, heilsaði upp á starfsfólk og átti fund með forstjóra og sviðsstjórum.

María Heimisdóttir forstjóri, kynnti fyrir ráðherra skipulag og rekstur Sjúkratrygginga Íslands og tæpti á þeim verkefnum sem efst eru á baugi um þessar mundir. Ráðherra fékk einnig kynningu á verkefnamiðuðu vinnuumhverfi og innleiðingu þess hjá stofnuninni.

Sjúkratryggingar Íslands starfa samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og annast framkvæmd þeirra. Hlutverk hennar er einnig að annast samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu og sinna greiðslum vegna hennar. Markmið laga um sjúkratryggingar er „að tryggja sjúkratryggðum aðstoð til verndar heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag“ eins og segir í lögunum.

  • Fundur - mynd
  • Heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkratryggingar Íslands - mynd úr myndasafni númer 2
  • Heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkratryggingar Íslands - mynd úr myndasafni númer 3
  • Heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkratryggingar Íslands - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum