Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. mars 2019 Innviðaráðuneytið

Staða forstjóra Samgöngustofu laus til umsóknar

Staða forstjóra Samgöngustofu hefur verið auglýst laust til umsóknar. Leitað er að framsýnum leiðtoga með brennandi áhuga á þróun og framtíð samgöngumála á Íslandi, metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og ná árangri í þágu almennings og atvinnulífs. Ráðherra skipar forstjóra Samgöngustofu til fimm ára frá 6. ágúst nk.

Forstjóri Samgöngustofu stýrir stofnuninni og ber ábyrgð á rekstri hennar, þjónustu og árangri. Hjá Samgöngustofu starfa 150 starfsmenn í fjölbreyttum störfum. Stofnunin fer með stjórnsýslu, öryggismál og eftirlit á sviði flugmála, umferðar- og vegamála, siglinga- og hafnamála. Meðal annarra verkefna Samgöngustofu eru rannsóknir, greining og þróun á starfssviðinu ásamt fræðslu og upplýsingamiðlun um samgöngumál.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.
  • Árangursrík reynsla af stjórnun, rekstri, stefnumótun og áætlanagerð.
  • Færni til að vinna að umbótum.
  • Reynsla af alþjóðasamstarfi kostur.
  • Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku nauðsynleg.
  • Góð hæfni til samvinnu og í samskiptum.

Umsókn skal fylgja stutt kynningarbréf um hvers vegna sótt er um starfið og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í starfi forstjóra Samgöngustofu.

Upplýsingar um embættið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, í síma 545 8200.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 1. apríl nk. Umsóknum skal skila rafrænt á [email protected]. Nánari upplýsingar um starfið eru á Starfatorgi – starfatorg.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum