Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. apríl 2019 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundar með ráðherra skosku heimastjórnarinnar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra skosku heimastjórnarinnar - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra skosku heimastjórnarinnar í dag. Ráðherrarnir ræddu meðal annars um samstarfsverkefni smærri ríkja á sviði hagsældar (e. the Wellbeing Economy Government project). Skotland leiðir verkefnið og munu ráðherrarnir taka þátt í stefnumótunarfundi því tengdu á morgun. Ráðherrarnir ræddu einnig um loftslagsmál og um samstarf ríkjanna á sviði sjálfbærrar ferðamennsku.

Katrín Jakobsdóttir:

„Það eru sterk tengsl á milli Íslands og Skotlands og ég fagna mjög samstarfi okkar á sviði hagsældar og sjálfbærrar ferðaþjónustu. Við lítum til stefnumótunar skoskra stjórnvalda í þessum málaflokkum og fleirum, þar á meðal að því er varðar stafrænt kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi. Þá ræddum við sérstaklega um loftslagsmál enda löngu tímabært að þau mál skili sér inn í stefnumótun á öllum öðrum sviðum.“

Forsætisráðherra átti einnig fund með Fionu Hyslop, ráðherra menningarmála, ferðamennsku og alþjóðamála og Roseanna Cunningham, ráðherra umhverfis- og loftslagsmála í skosku heimastjórninni i Edinborg.

Tilefni fundanna er þriggja daga heimsókn forsætisráðherra til Bretlands sem hófst á heimsókn til Glasgow og Edinborgar í dag.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra skosku heimastjórnarinnar


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum