Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. júní 2019 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 532/2019 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí 2019 til 30. júní 2020:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr:

kg

%

kr./kg.

ex0210.xxxx

Nautgripkjöt - Vöruliður 0210:

01.07.19-30.06.20

10.000

0

0

Kjöt af dýrum af nautgripakyni:

0210.2001

-- Beinlaust

0

0

0210.2009

-- Annars

0

0

0406.xxxx

Ostur og ystingur:

01.07.19-30.06.20

15.000

0

0

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

Skriflegar umsóknir skulu berast  til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 13. júní 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. júní 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum