Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. júní 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Stórsókn í þjónustu við börn - ný framkvæmdaáætlun í barnavernd samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í dag tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar til fjögurra ára, en Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, mælti fyrir henni 29. apríl síðastliðinn. Henni er ætlað að efla grunnvinnslu barnaverndarmála á fyrstu stigum, stuðla að snemmtækri íhlutun, auka samvinnu ríkis og sveitarfélaga og fjölga gagnreyndum úrræðum. Gert er ráð fyrir 600 milljón króna fjáraukningu til þess að byggja upp og þróa úrræði og þjónustu í málaflokknum.

„Framkvæmdaáætlunin er liður í heildarendurskoðun í málefnum barna og mikilvægt skref í átt að því að skapa heildarsýn og samfellu í þeirri þjónustu og í þeim úrræðum sem standa börnum og foreldrum til boða. Áætlunin er metnaðarfull og yfirgripsmikil og unnin í góðu samráði við helstu hagsmunaaðila sem er lykilatriði í þeirri vinnu sem nú stendur yfir í tengslum við málefni barna," segir Ásmundur Einar.

Félagsmálaráðuneytið, Barnaverndarstofa og barnaverndarnefndir sveitarfélaga munu vinna samkvæmt áætluninni með meginmarkmið barnaverndarlaga að leiðarljósi; að tryggja viðunandi uppeldisskilyrði barna og að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega og árangursríka aðstoð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum