Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. júní 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Ísafirði 18. júní

Opinn kynningarfundur á Ísafirði - mynd

Efnt verður til opinna kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og verður fundur haldinn í fundarsal hjúkrunarheimilisins Eyri á Ísafirði 18. júní næstkomandi. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Kallað hefur verið eftir stefnu í heilbrigðismálum hér á landi um árabil og hafa nokkrar atrennur verið gerðar að slíkri stefnumótun frá því að heilbrigðisáætlun sem samþykkt var á Alþingi árið 2001 rann sitt skeið árið 2010. Samþykkt stefnunnar markar því tímamót.

Í  meginatriðum snýst heilbrigðisstefnan um um hvernig skapa megi heildstætt heilbrigðiskerfi fyrir alla landsmenn sem tryggir sjúklingum samfellda þjónustu á réttu þjónustustigi þar sem saman fara gæði, öryggi, skilvirkni og hagkvæmni.

Fundurinn á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 18. júní hefst kl. 17.00.

Dagskrá:

  • Kynning stefnunnar: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
  • Sýn forstjóra: Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
  • Pallborðsumræður: Þátttakendur í pallborði auk frummælenda verða Helga Sif Friðjónsdóttir deildarstjóri göngudeildar geðsviðs Landspítala, Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri á Bolungarvíkurkaupstaðar, Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Fundarstjóri verður Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Athygli er vakin á því að streymt verður beint frá fundinum og verður streymið aðgengilegt á síðu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á facebook.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum