Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. júní 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýjar reglur um starfskjör forstöðumanna ríkisstofnana og viðbótarlaun

Nýjar reglur um almenn starfskjör forstöðumanna og reglur um viðbótarlaun þeirra hafa tekið gildi.

Unnið er að umfangsmiklum breytingum á starfsumhverfi forstöðumanna, sem miða að því að bæta stjórnendafærni þeirra og gera ríkið að eftirsóknarverðum vinnustað fyrir öfluga stjórnendur. Ný stjórnendastefna verður kynnt á næstunni og um síðustu áramót tók gildi nýtt launafyrirkomulag forstöðumanna. Reglur um almenn starfskjör og reglur um viðbótarlaun eru hluti af innleiðingu á nýja launafyrirkomulaginu. .Reglurnar eru settar í samræmi við 39. gr. a. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Þar er kveðið á um forsendur nýs launakerfis sem byggir á samræmdu matskerfi, grunnmati starfa.

Í lögunum er kveðið á um að fjármála- og efnahagsráðherra ákveði almenn starfskjör forstöðumanna. Ráðherra ákveður einnig forsendur viðbótarlauna, en hlutaðeigandi ráðherra, eða eftir atvikum stjórn, ákveður greiðslu viðbótarlauna innan ramma hinna almennu forsendna.

Reglur um almenn starfskjör eru ígildi réttinda sem jafnan er samið um í kjarasamningi. Við gerð reglnanna var horft til þess að almenn starfskjör forstöðumanna væru í samræmi við réttindi félagsmanna Bandalags háskólamanna (BHM) sem starfa hjá ríkinu. Í reglunum er mælt fyrir um réttindi í veikindum og framlag í fjölskyldu- og styrktarsjóð, orlof, endurmenntun og fleira.

Í nýjum reglum um greiðslu viðbótarlauna ákveður fjármála- og efnahagsráðherra forsendur viðbótarlauna en viðkomandi ráðuneyti ákveður hvort og hvenær greiða á viðbótarlaun í samræmi við þær. Heimild til greiðslu viðbótarlauna er bundin við sérstakt álag, t.d. vegna óvæntra eða ófyrirséðra ytri atvika, eða verkefna sem eru verulega umfram reglubundnar starfsskyldur og rúmast ekki innan venjubundinnar starfsemi stofnunar. Fjárhæð viðbótarlauna skal rúmast innan fjárveitingar viðkomandi stofnunar og byggja á málefnalegum sjónarmiðum og vera í takt við tilefni og í samræmi við aðstæður. Fjármála- og efnahagsráðherra tekur árlega saman lista yfir viðbótarlaun og birtir opinberlega. Það verður gert í fyrsta sinn á næsta ári.

Ítarlegri upplýsingar um nýtt launakerfi forstöðumanna er á stjornarradid.is/stjornendur

Reglur um starfskjör forstöðumanna 

Reglur um greiðslu viðbótarlauna forstöðumanna



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum