Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. júní 2019 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2019-2020

Föstudaginn 21. júní 2019 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum 0406.xxxx fyrir tímabilið 1. júlí 2019 – 30. júní 2020.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx, samtals 10.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir voru jafnar því magni sem í boði var eða 10.000 kg.

Tvö tilboð bárust um innflutning ostum, úr vörulið 0406.xxxx, samtals 22.500 kg. á meðalverðinu 2 kr./kg. Hæsta boð var 2 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 15.000 kg á meðalverðinu 2 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli umsókna:

 

Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2019 – júní 2020

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Ekran ehf

5.000

Innnes ehf

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2019– júní 2020

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

15.000

Ekran ehf

 

Reykjavík, 27. júní 2019

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum