Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. júlí 2019 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ráðherra skipar nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra hefur skipað nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs. Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir sem stuðla að nýsköpun í íslensku atvinnulífi og eflingu samkeppnishæfni landsins. Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. 


„Við viljum í gegnum Tækniþróunarsjóð ná til þeirra sem eru að þróa nýjar tæknilausnir í þágu samfélags, atvinnuþróunar, loftslagsmála, heilsu, velferðar og verðmætasköpunar. Undanfarin ár hefur sjóðurinn stutt dyggilega við bakið á fjölmörgum verkefnum og það er í höndum nýrrar stjórnar að halda þessu þýðingarmikla starfi áfram,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir nýsköpunarráðherra og þakkar um leið fyrrverandi stjórn fyrir sitt framlag.

 

Nýja stjórn skipa:
• Tryggvi Þorgeirsson, Sidekickhealth, formaður stjórnar, tilnefndur af ferðamála-,iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
• Laufey Hrólfsdóttir, Sjúkrahúsið á Akureyri, tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
• Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir, Primex, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
• Óttar Snædal Þorsteinsson, Samtökum atvinnulífsins, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins,
• Magnús Oddsson, Össur, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins
• Sigyn Jónsdóttir, Men and Mice ehf., tilnefnd af Vísinda- og tækniráði

Nánari upplýsingar um Tækniþróunarsjóð má finna á hér.

 

 

 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum