Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. ágúst 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Selfossi 14. ágúst

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndHeilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra stendur fyrir opnum fundi um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þann 14. ágúst. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi kl. 17 – 19.

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Stefnan verður kynnt á opnum fundum í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og hafa tveir slíkir fundir þegar verið haldnir, annar á Norðurlandi og hinn á Vestfjörðum.

Kynningarfundir verða haldnir í heilbrigðisumdæmi Vesturlands 15. ágúst, í heilbrigðisumdæmi Suðurnesja 19. ágúst, í heilbrigðisumdæmi Austurlands 22. ágúst og í heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins 4. september.

„Heilbrigðiskerfið er flókið og margþætt, sérhæfing mikil og þjónustuveitendur margir. Verkefni heilbrigðisyfirvalda í samstarfi við stofnanir heilbrigðiskerfisins, er að skapa heildrænt kerfi sem tryggir sjúklingum samfellda þjónustu á réttu þjónustustigi þar sem saman fara gæði, öryggi, skilvirkni og hagkvæmni.  Um þetta snýst heilbrigðisstefnan,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra en fundurinn á Selfossi hefst með erindi hennar.

Dagskrá fundarins á Selfossi 14. ágúst

  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir stefnuna
  • Herdís Gunnarsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands – Sýn forstjóra
  • María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) – Áhrif heilbrigðisstefnu á hlutverk og starfsemi SÍ
  • Pallborðsumræður. Auk frummælenda taka eftirtaldir þátt í pallborðsumræðum: Eva Björk Harðardóttir, oddviti sveitarstjórnar Skaftárhrepps og formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Ásthildur Knútsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Fundarstjóri er Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Staður: Fundarsalur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.

Fundurinn er öllum opinn og gestir boðnir velkomnir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum