Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. ágúst 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisstefna til ársins 2030 kynnt á opnum fundi á Suðurnesjum 19. ágúst

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndHeilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja boðar til opins kynningarfundar um heilbriðgisstefnu til ársins 2030 í fundarsal heilbrigðisstofnunarinnar í Reykjanesbæ 19. ágúst næstkomandi kl. 17.00 - 19.00.

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða dreifðari byggðum landsins. 

Heilbrigðisstefnan hefur þegar verið kynnt í heilbrigðisumdæmum Norðurlands, Vestfjarða og Suðurlands. Í dag kl. 17 verður fundur í heilbrigðisumdæmi Vesturlands og 22. ágúst í heilbrigðisumdæmi Austurlands.

Dagskrá fundarins á Suðurnesjum 19. ágúst:

  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra – Kynning á heilbrigðisstefnu
  • Markús Ingólfur Eiríksson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja – Sýn forstjóra
  • Alma D. Möller landlæknir Heilbrigðisstefna frá sjónarhóli landlæknis
  • Pallborð: Auk frummælenda taka þátt í pallborðsumræðunum þau Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Fundarstjóri er Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

 Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum