Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. ágúst 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Aðgerðir í menntamálum: starfsnám kennaranema

Liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að fjölga kennurum er að frá og með þessu hausti býðst nemendum á lokaári í meistaranámi til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi launað starfsnám. Samkvæmt upplýsingum frá háskólunum gengur mjög vel að finna starfsnámstöður fyrir kennaranema, 96% þeirra sem eftir því sækjast hafa þegar fengið stöðu.

„Við höfum fengið virkilega jákvæð viðbrögð við aðgerðunum sem miða að fjölgun kennara, frá skólasamfélaginu, sveitarfélögunum, kennaraforystunni og foreldrum. Aðgerðirnar voru unnar í góðu samráði og samvinna okkar er farin að skila góðum árangri að mínu mati. Það er okkur kappsmál að stuðla að öflugu skólastarfi og styrku menntakerfi – þar leika kennarar aðalhlutverkið,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Í starfsnámi kennaranema starfa þeir við hlið reyndra kennara yfir heilt skólaár. Starfsnámið er fjölbreytt, kennaranemar sinna daglegum störfum í skólunum og kynna sér fjölbreyttar kennsluaðferðir og starfshætti á þeim námssviðum eða námsgreinum sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Starfsnámið er mikilvægur liður í þjálfun kennaranemanna og undirbúningi þeirra fyrir frekari störf í skólum að lokinni útskrift.

Meðal annarra aðgerða stjórnvalda sem miða að því að fjölga starfandi kennurum er námsstyrkur til nemenda á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi og styrkir til starfandi kennara til náms í starfstengdri leiðsögn. Umsóknum um kennaranám fjölgaði verulega milli ára sl. vor, alls um rúmlega 200 í háskólunum fjórum sem bjóða upp á kennaranám hér á landi.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum