Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. ágúst 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stóraukin aðsókn í kennaranám: Nýnemadagar á Menntavísindasviði HÍ

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ræðir við hóp nýnema á Menntavísindasviði HÍ. - mynd
Rúmlega 550 nýnemar hófu nám sitt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í vikunni, en kennaranám er einnig í boði við þrjá aðra háskóla hér á landi. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti Menntavísindasvið í gær og ræddi við nýnemahópinn.

Umsóknum um kennaranám fjölgaði verulega milli ára, alls um rúmlega 200 á landinu öllu. Hlutfallslega var aukningin mest hjá Listaháskóla Íslands þar sem umsóknum um nám í listkennsludeild fjölgaði um 170% milli ára, en umsóknum um grunnnám í grunnskólakennarafræðum við Háskóla Íslands fjölgaði um 45%. Karlkyns umsækjendum fjölgar í þeim hópi en um helmingi fleiri karlar sóttu um grunnskólakennaranám í Háskóla Íslands en í fyrra og þrefalt fleiri í nám í leikskólakennarafræðum. Þá fjölgaði einnig umsóknum um nám leiðsagnakennara.

„Það er mér mikið fagnaðarefni að vísbendingar eru um að aðgerðir sem við réðumst í sl. vor til þess að fjölga kennurum séu þegar farnar að skila árangri. Umsóknum um kennaranám fjölgar verulega milli ára og einnig gekk mjög vel að útvega kennaranemum á lokaári launaðar starfsnámsstöður. Til þess að mæta áskorunum framtíðarinnar þurfum við enn fleiri fjölhæfa og drífandi kennara og það er einkar ánægjulegt að fleiri íhugi nú að starfa á þeim vettvangi,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum