Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. ágúst 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Horft til framtíðar – málþing um menntakerfið og heilbrigðisþjónustuna 5. september

Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til árangurs. Þetta verða viðfangsefni fundar sem heilbrigðisráðherra boðar til 5. september nk. Markmiðið er að fjalla um þessar mikilvægu stoðir heilbrigðiskerfisins í ljósi nýrrar heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Fundurinn verður haldinn í Veröld, húsi Vigdísar kl. 17. – 19. Umræðustjórar verða Ævar Kjartansson og Magnús Karl Magnússon sem fá til sín  í sófaspjall marga góða gesti með víðtæka þekkingu og reynslu á þessum sviðum. Fundarstjóri verður Björg Magnúsdóttir. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.

Dagskráin

Dagskrá

17.00

Setning fundarins

Ávarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra

17:10

Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni

Alma D. Möller landlæknir flytur framsögu

 

Sófaspjall: Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands (HÍ), Sandra Bryndísardóttir Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands og Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala

17:50

Vísindi

Engilbert Sigurðsson forseti læknadeildar HÍ flytur framsögu

Sófaspjall: Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við HÍ, Sunna Snædal, formaður vísindasiðanefndar og Unnur Valdimarsdóttir prófessor við HÍ.

18:20

Forysta til árangurs

 

Sófaspjall: Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur.

18:55

Heilbrigðisráðherra slítur fundi.

Streymt verður beint frá fundinum og verður útsendingin aðgengileg á vef heilbrigðisráðuneytisins www.hrn.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum