Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. september 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mikil aukning í notkun stafrænnar þjónustu hjá hinu opinbera

Innskráningar á vefi hins opinbera voru 52% fleiri fyrstu átta mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Fyrstu átta mánuði þessa árs voru innskráningarnar 7,4 milljónir talsins, sem jafngildir 42 þúsund heimsóknum á dag. Þetta bendir til þess að fólki kjósi í auknum mæli að nýta stafræna þjónustu til þess að sinna erindum við hið opinbera, fremur en að gera sér ferð til stofnana eða eiga í samskiptum með öðrum hætti.

Hnipp hefur reynst vel 

Í sumar var tekið í notkun svokallað „hnipp“ sem lætur fólk vita ef það fær erindi eða skilaboð frá hinu opinbera í persónulegt pósthólf á miðlægu þjónustugáttinni Ísland.is. Hefur þessi þjónusta mælst vel fyrir og á hún nokkurn þátt í aukningu innskráninga. Þá kemur í ljós aukin notkun rafrænna skilríkja til innskráningar. 60% þeirra sem skráðu sig inn á opinbera vefi nýttu rafræn skilríki til auðkenningar á móti 40% hlutdeild Íslykils.

Aðgengileg opinber þjónusta á Ísland.is

Verkefnastofa um stafrænt Ísland, sem er eining innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins, vinnur nú að því að gera opinbera þjónustu aðgengilega á Ísland.is og er markmiðið að öll helsta þjónusta hins opinbera verði aðgengileg þar fyrir árslok 2020.

 

 
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum