Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. september 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Siðferðileg gildi og forgangsröðun rædd á heilbrigðisþingi 15. nóvember

Heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings 15. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „Siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu.“ Þingið er liður í vinnu sem framundan er við gerð þingsályktunartillögu um þessi mál sem ráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi næsta vor.

Við stefnumörkun stjórnvalda á sviði heilbrigðisþjónustu er mikilvægt að sátt ríki um þau gildi sem eiga að veita okkur leiðsögn að settum markmiðum. Heilbrigðisstefnan sem samþykkt var á Alþingi í vor í mikilli samstöðu er traustur grunnur til að byggja á til framtíðar. Á sama hátt er þingsályktunartillögunni um siðferðileg gildi og forgangsröðun ætlað að skapa þá breiðu samfélagslegu sátt sem ríkja þarf um þessi stóru og krefjandi viðfangsefni heilbrigðisþjónustunnar“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Tengist áherslum heilbrigðisstefnu

Umfjöllun um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu tengist áherslum sem fram koma í heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Líkt og þar segir standa stjórnendur og starfsfólk heilbrigðiskerfisins daglega frammi fyrir fjölda erfiðra ákvarðana sem varða líf og heilsu fólks og forgangsröðun er því liður í daglegum störfum þess. Bent er á að auknir möguleikar við greiningu og meðferð sjúkdóma með sívaxandi kostnaði gera auknar kröfur um að ríkið sem greiðandi heilbrigðisþjónustunnar forgangsraði því fjármagni sem er til umráða. Mikilvægt sé að forgangsröðun af hálfu stjórnvalda byggi á skýrum viðmiðum og siðferðilegum gildum sem öllum eru kunn og ljós þegar erfiðar ákvarðanir eru teknar, hvort sem um er að ræða heilbrigðisstarfsfólkið eða sjúklingana. Um þessi gildi þurfi að ríkja almenn sátt í samfélaginu.

Í heilbrigðisstefnunni eru sett fram eftirfarandi þrjú grundvallarviðmið sem talinn er samhljómur um þegar horft er til umræðunnar hér á landi og hjá nágrannaþjónunum:

Mannhelgi; virðing fyrir mannlegri reisn

  • Allir menn eru jafnir og eiga sama rétt til verndar lífs og viðhalds heilbrigðis.

Þörf og samstaða

  • Þeir sem eru í brýnustu þörfinni fyrir heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma skulu ganga fyrir.
  • Gæta skal að rétti þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu, af hvaða ástæðum það er, og geta því ekki sjálfir leitað réttar síns eða varið hann.

Hagkvæmni og skilvirkni

  • Heilbrigðisþjónustan skal vera markviss, árangursrík og eins hagkvæm og nokkur kostur er.

Efni heilbrigðisþingsins 15. nóvember næstkomandi verður kynnt nánar á næstu vikum, sagt frá fyrirlesurunum sem þar munu koma fram og hver verða umfjöllunarefni þeirra o.fl.

Þingið verður haldið á hótel Hilton Reykjavik Nordica og stendur allan daginn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum