Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir: Styrkir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2020. Umsóknarfrestur er til hádegis þann 29. október næstkomandi. 

Hvað er styrkhæft?

Framkvæmdasjóðurinn styrkir verkefni á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga jafnt sem einkaaðila sem uppfylla a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum:

a) Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru
b) Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og náttúruvernd
c) Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna verkefna sem eru styrkhæf skv. liðum a eða b

Gæði umsókna

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þær reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins og reglugerð um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða hér á vefnum undir www.ferdamalastofa.is/umsoknir.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun veita umsækjendum leiðbeiningar við undirbúning og gerð umsókna þar til auglýstum umsóknarfresti lýkur.

Hvar ber að sækja um?

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Þjónustugátt Ferðamálastofu sem aðgengileg er á www.ferdamalastofa.is/umsoknir og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um umsóknaferlið.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til hádegis þriðjudaginn 29. október 2019. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.

Nánari upplýsingar hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum