Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. október 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem heyra undir málefnasvið félagsmálaráðuneytisins. Félagasamtök sem hljóta styrki á fjárlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum fjárlaga fyrir sömu verkefni.

Hér má nálgast reglur um úthlutun styrkja sem félags- og barnamálaráðherra veitir samkvæmt safnliðum fjárlaga hverju sinni.

Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum félags- og barnamálaráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Þá má meðal annars veita til verkefna sem felast í því að:

  • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
  • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
  • Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf.


Að þessu sinni verður lögð megináhersla á verkefni sem lúta að málefnum barna og fjölskyldna.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk frá félagsmálaráðuneytinu til verkefnis skal fylgja greinargerð með upplýsingum um framkvæmd þess og ráðstöfun styrkfjárins, til þess að ný umsókn verði tekin til greina.

Umsóknarfrestur er til klukkan 16.00 mánudaginn 4. nóvember 2019. Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur rennur út verður ekki tekin til umfjöllunar. Úthlutun fer fram eigi síðar en 1. febrúar 2020.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is).  

Nánar leiðbeiningar eru eftirfarandi:

Innskráning á mínar síður – þrjár leiðir:
1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is.
2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is.
3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða. Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Athugið að merkja við félagsmálaráðuneytið. Þar undir er umsóknareyðublaðið: Styrkur af safnliðum fjárlaga 2019 – félagsmál. 

Kynningarfundur um úthlutun styrkja af safnliðum fjárlaga

Kynningarfundur um úthlutun styrkja af safnliðum fjárlaga þar sem farið verður yfir reglur sjóðsins og áherslur í ár, verður haldinn á Nauthól þriðjudaginn 8. október klukkan 14.00.
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum