Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. október 2019 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2020 og endurskoðun framlaga 2019

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2020 og endurskoðun á framlögum í tveimur flokkum fyrir árið 2019.

Framlög til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts árið 2020

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2020, sbr. reglugerð, nr. 80/2001 með síðari breytingum. Á grundvelli áætlunar um tekjur sjóðsins á árinu 2020 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna 5.025,8 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlög fyrirfram sem nema 60% af áætluðum framlögum ársins eða um 3.015,5 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní.

Uppgjör framlaganna á árinu 2020 fer fram mánuðina, júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2019, upplýsinga um álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2020 og upplýsinga um veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2020. 

Áætluð framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2020

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga munu nema alls 10.400 m.kr. árið 2020. Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar þess efnis, sbr. b. liðar 12. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, að fjárhæð 10.400 m.kr.

Til úthlutunar nú koma 9.600 m.kr. samkvæmt A-hluta framlaganna og 575 m.kr. samkvæmt B-hluta framlaganna vegna skólaaksturs úr dreifbýli eða samtals 9.775 m.kr. Í desember koma til úthlutunar 175 m.kr. til viðbótar vegna skólaaksturs úr dreifbýli á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við aksturinn á árinu. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað á árinu 2020 vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2020 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2020. Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2020.

Framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2019 endurskoðuð

Jafnframt hefur ráðherra samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlaga til útgjaldajöfnunar úr sjóðnum á árinu 2019, skv. reglugerð nr. 1088/2018. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Framlög úr Jöfnunarsjóði árið 2020 vegna þjónustu við fatlað fólk

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2020. Áætluð framlög næsta árs nema alls 17.400 m.kr.

Við útreikning framlaganna skiptast 88% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1,25% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2018 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2018 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2019. Leiðréttingin nemur 70 m.kr. og nema áætluð framlög næsta árs því 17.470 m.kr.

Framlögin eru greidd mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í maí 2020.

Framlög vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2019 endurskoðuð

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða áætlun um úthlutanir framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2019. Heildarframlög nema 16.770 m.kr.

Breytingar frá 2. áætlun ársins 2019 eru til komnar vegna breytinga á reiknaðri stuðningsþörf út frá fyrirliggjandi gögnum. Helstu ástæður breyttrar stuðningsþarfar eru:

  • Nýliðun á árinu 2018.
  • Framkvæmd endurmats á núverandi SIS mati.
  • Aðrar breytingar í gagnagrunni, þ.m.t. andlát einstaklinga og kostnaðarbreytingar á þjónustu við einstaklinga.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2020, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 9.660 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2018.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2020 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2020, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2018 og  endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2019.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar. 

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2020, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð 2.580,5 m.kr. Þar af nemur framlag til Reykjavíkurborgar vegna reksturs sérskóla og sérdeilda 1.517,3 m.kr.

Framlög vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál

Loks hefur ráðherra samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál á árinu 2020, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 351/2002 að fjárhæð 455 m.kr. Ákveðið hefur verið að grunnfjárhæð framlagsins hækki úr 130.000 kr. á nemenda í 150.000 kr. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum