Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. október 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Áform um lagasetningu um plastvörur kynnt

Umhverfisstofnun réðst í átak á árinu til að vekja athygli á mikilvægi þess að draga úr notkun á einnota plasti.  - mynd

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Markmið frumvarpsins verður að draga úr áhrifum plasts á umhverfið og heilsu fólks. Jafnframt að hreinsa plast úr umhverfinu, vekja neytendur til umhugsunar um neyslu og umhverfisáhrif plasts, draga úr notkun einnota plastvara og styðja við notkun fjölnota vara.

Lagasetningin byggir á innleiðingu nýrrar Evróputilskipunar sem ætlað er að koma í veg fyrir og draga úr umhverfisáhrifum af tilteknum vörum úr plasti og áhrifum þeirra á heilsu fólks. Þá er fyrirhuguð lagasetning liður í áherslu ríkisstjórnarinnar á aðgerðir gegn plastmengun og eflingu hringrásarhagkerfisins.

Tilskipunin, sem lagasetningunni verður ætlað að innleiða, tekur fyrst og fremst til þeirra plastvara sem algengastar eru á strandsvæðum en mælingar hafa sýnt að rusl á ströndum í Evrópu er allt að 80-85% plast. Þar af eru einnota plastvörur 50% og um 27% af rusli tengist veiðum. Tilskipuninni er einnig ætlað að styðja við hringrásarhagkerfið og efla úrgangsforvarnir með því að ýta undir notkun sjálfbærra og fjölnota vara, fremur en einnota.

Óskað er eftir því að umsagnir um áformin berist í Samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 11. nóvember nk.

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir í Samráðsgátt.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum