Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. nóvember 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

47% aukning í útgáfu barnabóka

Vísbendingar eru um aukna útgáfu bóka hér á landi, m.a. þegar horft er til skráðra titla í Bókatíðindum. Fyrr á þessu ári tóku gildi lög um stuðning við útgáfu bóka á íslensku en markmið þeirra er að efla bókaútgáfu vegna mikilvægis hennar fyrir íslenska tungu og eflingu læsis. Útgefendur geta nú sótt um endurgreiðslu á 25% kostnaðar sem hlýst af útgáfu bóka og hafa þegar borist rúmlega 150 umsóknir til endurgreiðslunefndarinnar vegna bóka sem komu út á fyrri hluta þessa árs.

„Við gleðjumst yfir því að fleiri bækur komi út á íslensku því þá er líklegra að lesendur finni efni við sitt hæfi – fjölbreytnin vinnur með okkur í því verkefni að efla íslenskuna og bæta læsi. Það er aldrei svo að einn lesandi komist yfir alla útgáfuna en það er frábært fyrir alla að hafa meira val, ekki síst yngri lesendur sem hafa hvatt til aukinnar útgáfu bóka fyrir börn og ungmenni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Samkvæmt skráningum í Bókatíðindum, sem út koma árlega, fjölgar titlum um 47% milli ára í flokki skáldverka fyrir börn, 39% milli ára í flokki ungmennabóka, 51% í flokki ljóða og leikrita og 21% í flokki skáldverka fyrir fullorðna (nýjar íslenskar bækur og endurútgáfur). Þessar tölur miðast við prentaðar bækur í þessum flokkum í Bókatíðindum árin 2018 og 2019. Bókatíðindi eru þó ekki tæmandi yfirlit um útgáfuna í heild sinni því ekki eru allar bækur skráðar þar og í þeirri tölfræði er ekki gerður greinarmunur á frum- og endurútgáfum bóka.



Nánari upplýsingar um styrki vegna útgáfu bóka á íslensku og endurgreiðsluferlið má finna á vef ráðuneytisins.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum