Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. nóvember 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Starfsstjórn tekin til starfa á Reykjalundi

Anna Stefánsdóttir, Stefán Yngvason og Óskar Jón Helgason - myndHeilbrigðisráðuneyti

Sérstök þriggja manna starfsstjórn Reykjalundar sem sett hefur verið á fót fyrir tilstilli heilbrigðisráðherra var kynnt fyrir starfsfólkinu þar í morgun. Starfsstjórnin hefur fullt sjálfstæði og óskorað umboð til athafna við stjórnun stofnunarinnar meðan unnið verður að því að aðgreina rekstur endurhæfingarþjónustu Reykjalundar frá annarri starfsemi og eignum SÍBS. Stefán Yngvason endurhæfingarlæknir verður formaður starfsstjórnarinnar en aðrir stjórnarmenn eru Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur og Óskar Jón Helgason, sjúkraþjálfari.

Í liðinni viku fór stjórn SÍBS þess á leit við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að hún hlutaðist til um að koma á fót starfsstjórn á Reykjalundi í ljósi þess vanda sem fjallað hefur verið um opinberlega að undanförnum. Svandís féllst á þessa málaleitan, enda væri skýrt að val á fulltrúum í starfsstjórnina væri á hennar hendi og að heimildir stjórnarinnar til að stýra stofnuninni væru afdráttarlausar og óskoraðar.

Svandís segir öllum ljóst að Reykjalundur gegni afar stóru og þýðingarmiklu hlutverki í heilbrigðisþjónustu við landsmenn. „Þetta er lykilstofnun á sviði endurhæfingar þar sem býr mikill mannauður, þekking og djúp reynsla sem ekki má glatast. Með þetta í huga lagði ég áherslu á að finna fólk í starfsstjórnina sem nýtur traust innan og utan Reykjalundar og er fært um að stíga inn í aðstæður og skapa sátt og vinnufrið á Reykjalundi. Þetta tel ég mikilvægt fyrsta skref og er sannfærð um að vel hafi tekist“ segir heilbrigðisráðherra.

 

 

  • Heilbrigðisráðherra - mynd
  • starfsfólk Reykjalundar - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum